ó jæja- við hittumst í gærkvöldi; ég (Helena), Hulda, Bína og
Jónína... og settum saman dagskrá fyrir bekkjarmótið
jibbý.. hún
er alveg að verða tilbúin- bara nokkur smáatriði eftir.. þannig að
hversu mikið hver þarf að borga kemur í ljós í dag eða á morgun
föstudagskvöldið: Hittingur á Kjallaranum, engin
sérstök dagskrá. baara hafa gaman
Laugardagur: hittast hjá skólanum um klukkan 13:00.
ætlum að reyna að fá að kíkja aðeins inn og skoða okkur um- það er
í vinnslu
Skemmtiatriðin byrja ábyggilega um klukkan 14:00 Þannig að
við skundum niðrá bryggju í fjörið og reynum að taka þátt í
einhverju- sniðugt að kannski skora á aðra árganga sem eru að
hittast í kappróður?? bara hugmynd- en það er víst nóg um að vera á
bryggjunni og við ættum nú að geta tekið þátt í einhverju..
(og
gert okkur að fíflum hehe)
eftir skemmtiatriðin er stefnan tekin upp á æfingavöll í
leiki
jei jei.. það verður hörkustuð skal ég ykkur lofa og
verðlaun í boði-- úhú
eftir leikina er klukkan væntanlega orðin frekar margt og
maður þarf að fara að gera sig ready fyrir kvöldið en þeir sem
vilja geta skellt sér í sund- en það verður engin sérstök hópferð-
ekki planað (sjáum bara til)
um kvöldið:
Matur klukkan 19:30 í Tröð (þ.e. sjoppunni Tröð, gamla hang
out pleisið)- þá ætlum við að fá einhvern til að grilla fyrir
okkur læri (mmmm..) og fá okkur dýrindismeðlæti með
matnum
eftir matinn ætlum við að skemmta okkur rosa vel í singstar,
skoða myndir, rifja upp gamlar minningar, veitt verða verðlaun
fyrir leikina og svo er Elmar vinsamlegast beðinn um að koma með
gítar
(eða einhver annar sem er klár á gítarinn) og fleira
skemmtilegt.
svo er ball með Brimkló í víkurbæ- stefnan tekin þangað þar
sem planið er að djamma af sér rassinn langt fram á
morgun..
Þetta er dagskráin í grófum dráttum en þetta verður alveg
rosalega gaman- og það er líka gaman hversu margir eru búnir að
staðfesta komu sína
ef það eru einhverjar spurningar þá er hægt að hringja í
mig(Helenu) s: 8695311 eða Huldu s: 8673612 eða barasta skrifa
hérna á
síðuna....
Hlakka til að sjá ykkur öll
Kv. Helena
eitt enn- eru margir í vandræðum með gistingu??